Auður Torfadóttir hlýtur alþjóðlega viðurkenningu FIPLV

Alþjóðleg samtök tungumálakennara, The International Federation of Language Teacher Associations (FIPLV), sem hefur aðsetur í París, veittu Auði Torfadóttur, fyrrverandi dósent í ensku við Kennaraháskóla Íslands, alþjóðleg verðlaun samtakanna fyrir árið 2013. Þetta var ákveðið á fundi samtakanna fyrir skemmstu.

STÍL – Samtök tungumálakennara á Íslandi tilnefndu Auði til verðlaunanna vegna margvíslegra starfa hennar í þágu tungumálakennslu á Íslandi og óska Auði hjartanlega til hamingju með verðskuldaða viðurkenningu.

Þessi færsla var birt undir Uncategorized. Bókamerkja beinan tengil.