☼navidadlatina.com/recetas/mexico.asp☼ jólamatur í Mexíkó

Chalupas (Fylltir tortillabátar)
Magn: 12 chalupas Hitunartími: um 10 mínútur
Hitastig: miðlungshátt, 35o’F

Feiti
2 bollar rifinn cheddarostur
12 maístortillur*
salt
1 1/2 bolli salat í strimlum
3 bollar refritosbaunir (Frijoles Refritos) *
2 saxaðir tómatar
2 bollar rautt eða grænt salsa*
1 1/2 bolli guacamole

1. Hitið 4 únsur af feiti á þungri pönnu við miðlungshita.
2. Steikið hverja tortillu í heitri feiti, kaffærið hana með
trékefli, sleif eða álíka verkfæri. (Tortillan verður bikarlaga.)
Þurrkið á rakadrægu viskastykki og stráið örlitlu salti yfir.
3. Fyllið chalupa með 1/4 bolla af baunum, 2 matskeiðum af salsa, og 2
matskeiðum af osti.
4. Setjið chalupas á bökunarplötu og hitið í ofni við 375’F í
um það bil 10 mínútur, eða þangað til osturinn bráðnar.
5. Skreytið chalupas með salati, tómötum og guacamole áður en borið er fram.

Rauð enchiladas
(Enchiladas Rojas)
Innihald
18 tortillur
8 þurrkaðir rauðir chili
1 laukur
2 hvítlauksrif
1,5 bolli af cheddar osti
2 svört piparfræ
1 kanelstöng
2 negulnaglar
hreðkur
1 salathöfuð
matarolía
salt
Matseld
Skerið laukinn í teninga og rífið ostinn. Hreinsið chili fyrir sósuna, malið saman við negulinn, kanelinn, hvítlauk, pipar og salt. Steikið tortillurnar og dýfið í sósuna sem gerð hefur verið, fyllið með osti, rúllið upp, staflið á bakka og skreytið með salati.