Næstu skref

Á þessu skólaári mun vefurinn Íslenska sem annað mál halda áfram að þróast.  Fyrir tilstilli styrks sem veittur var úr Þróunarsjóði innflytjendaráðs mun efni byggt á nýjum rannsóknum og áralöngu starfi kennara bætast við vefinn á næstu vikum.  Leitast verður við að færa kunnáttu sérfræðinga og fræðimanna út í skólana en um leið að safna upplýsingum frá kennurum um hvað virkar og hvað ekki samkvæmt þeirra reynslu.

Kennarar eru hvattir til að skoða efnið sem birtist á vefnum smátt og smátt.  Ábendingar um áhugavert efni og tengla eru vel þegnar og er skólafólk hvatt til að taka þátt í mótun þessa vettvangs á netinu.

Mynd eftir John Grayson / CC BY-SA 2.0
This entry was posted in ÍSA-fréttir. Bookmark the permalink.