Skipulagið

  • Það skiptir miklu að undirbúningur okkar sé góður.
  • Að við séum búin að raða nemendum saman í hópa.
  • Miða við 4 í hóp.
  • Mikilvægt að hópar séu ekki of stórir og að kennarar ákveði sjálfir hvernig hóparnir eru skipaðir.
  • Raða verkefnunum í möppurnar þeirra þannig að hver hópur fái verkefni við hæfi.
  • Mjög misjafnt eftir verkefnum hversu mikið er hægt að getuskipta í hópana.
  • Hver hópur á eina möppu sem öll farsímaverkefni fara í.
  • Við skiptum síðan hópunum upp 3-4 sinnum á vetri.
  • Mikilvægt er að virkja alla.
  • Setjum það t.d. sem skilyrði þegar talþrautir eru teknar upp á símana, að hópmeðlimir skiptist á.
  • Hver meðlimur má ekki leysa fleiri en eina talþraut.

Flókin verkefni/ný verkefni

  • Ef farið er í flókin/nýja gerð verkefna  er nauðsynlegt að fara aðeins yfir þau í lok kennslustundar daginn áður, þannig að sem minnstur tími fari “til spillis” þegar á hólminn er komið.
  • Alla leiðbeiningar þurfa að vera skýrar
  • Nemendur þurfa að hafa með sér bjargir, t.d. orðabók eða orðalista (t.d. með forsetningum þegar farið er í forsetningagöngu).
[next]