Merkisdagar

Markmið: Að nemendur kynnist þeim ytri táknum norrænu þjóðanna.

Umræður um þjóðhátíðardaginn:

  • Hvers vegna höldum við hann hátíðlegan?
  • Hvenær eru þjóðhátíðardagar á öðrum Norðurlöndum og hvers vegna?

Einstaklingsvinna


  • Nemendur læri þjóðsönginn.
  • Nemendur velji að læra (lesa og myndskreyta) einn þjóðsöng annarra Norðurlandaþjóða.
  • Nemendur hlusta á þjóðsöngva frá hinum Norðurlöndunum.

Hópvinna
Hver hópur á að sjá um eitt land.

Þeir vinna verkefni þar sem eftirtaldar upplýsingar koma fram: þjóðsöngurinn, fáninn, þjóðbúningar, hvernig haldið er upp á þjóðhátíðardagurinn.

Framsetning efnis:

Leikræn tjáning, upplestur, vinna sett fram á veggspjaldi, útbúin er frétt í dagblað fréttabréf eða á myndbandi.

Gestir eru fengnir frá hverju landi til að segja frá siðvenjum.

Útbúa má útvarps- eða sjónvarpsþátt þar sem talað er við einn fulltrúa frá hverju Norðurlandanna og þeir bera saman bækur sínar.

Hvað er líkt og hvað er ólíkt hjá þjóðunum á þjóðhátíðardegi þeirra?

Aðrir merkisdagar

  • Hvaða upplýsingar getur þú fundið um eftirfarandi daga?
  • Hvers vegna menn halda upp á þá og hvernig?
  • Er það mismunandi eftir löndum?
  • Eru einhverjir siðir tengdir þessum hátíðum, sem ekki þekkjast hér á landi?

Jónsmessa (Skt.Hans), Valborgarmessa, verslunarmannahelgi, páskar, áramót,
afmæli, sumardagurinn fyrsti, Lúsíuhátíð.