Rannsóknir og sköpun

Markmið:

  • Að nemendur lesi.
  • Að nemendur velji sér lesefni með því að lesa kynningu aftan á bókinni.
  • Að nemendur læri að mæla með bókum sem þeir hafa lesið.

Nemendur fá í hendur lista með titlum valinna höfunda.

  • Nemendur fara með höfundalista á bókasafnið og athuga hvaða bækur eru til eftir tiltekinn höfund.
  • Nemendur kynna öðrum bækur sem þeir hafa lesið eða hlustað á.
  • Nemendur greini hvert er viðfangsefni bókarinnar; ást, stríðni, ráðgátur, ævintýri?

Verkefni:

Lestrarrall haldið í samráði við skóla- eða almenningsbókasafn.

Lestrarrall felst í því að nemendur lesa ákveðinn bókafjölda/blaðsíðufjölda á tilteknum tíma og gera síðan stuttlega grein fyrir efninu, t.d. með því að stofna Bókaorm fyrir hvern hóp.

Norrænir höfundar sem eiga verk í íslenskri þýðingu eru til á flestum bókasöfnum.

Vinsældalisti:

  • Hvaða bók lásu flestir í rallinu?
  • Hvaða höfundur var vinsælastur?
  • Hvert er efni vinsælustu bókanna?

Kvikmyndasýning:

Nemendur horfta á myndgerð einhverrar góðrar sögu? Sjá kaflann um norrænar kvikmyndir.

Viðbótarverkefni:

  • Að kynnast áhugaverðum unglingabókahöfundi og að útbúa kynningu á höfundi og ritum hans.
  • Að hvetja nemendur til að setja saman sögur, ævintýri og ljóð, s. s. um skólalífið, ástina, ástarsorgina og samskipti við annað fólk á ýmsum aldri.