Tungumálatorgið er sett upp að frumkvæði Mennta- og menningarmálaráðuneytis og með góðum stuðningi Menntavísindasviðs Háskóla Íslands, Menntasviðs Reykjavíkur og Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. Fyrstu skref verkefnisins hafa verið styrkt af Mennta- og menningarmálaráðuneyti, Sprotasjóði, Jöfnunarsjóði, Samstarfssjóði Íslands og Danmerkur, Endurmenntunarsjóði grunnskóla, Þróunarsjóði innflytjendamála, Innanríkisráðuneytinu, Nordplus, Norræna tungumálaverkefninu (Nordisk Sprogkampagne) og Vinnumálastofnun.
Uppsetning vefkerfis og vinna fyrstu hluta vefsins fór að mestu fram í Menntasmiðju Menntavísindasviðs Háskóla Íslands. Öll aðstaða sem og aðgengi að hugbúnaði, þróunarsvæðum, upptökubúnaði og sértækri ráðgjöf hefur verið til fyrirmyndar. Mennta- og menningarmálaráðuneyti setti jafnframt upp vefvæði fyrir Tungumálatorgið og hafa starfsmenn ráðuneytisins reynst traustir bakhjarlar.
Fjölmargir einstaklingar, ýmis samtök tungumálakennara og stofnanir hafa lagt verkefninu lið. Verkefnið er því samstarfsverkefni í víðum skilningi þar sem leggja saman fagmenn á vettvangi tækninnar, sérfræðiþekkingar og framkvæmdar á vettvangi í samvinnu við nemendur.
Áhugi og stuðningur þeirra mörgu aðila er tengjast verkefninu (hvort heldur sem er í formi beinna styrkja eða efnis og aðstöðu) hefur verið mikilvæg hvatning til framkvæmda. Tengslanet fag- og tækniaðila sem byggt hefur verið upp hefur skipt hefur sköpum fyrir gott gengi við uppsetningu Tungumálatorgsins. Samlegðaráhrif hafa ýtt verkinu áfram og komið þekkingu aðstandenda á hærra plan.
Bakland verkefnisins hjá Menntasmiðju og ráðuneyti hefur skipt sköpum fyrir þróun þess. Þetta vinnulíkan þar sem ráðuneyti og háskóli skapa umgjörð fyrir verkefnið, auk þess sem að því hafa komið sérfræðingar í upplýsingatækni, reyndir kennarar, kennsluráðgjafar og háskólanemar er áhugavert líkan fyrir þróunarvinnu í menntasamfélaginu sem leiðir af sér ríkulegan afrakstur og byggir upp nýja þekkingu sem getur skilað sér áfram til fleiri aðila og verkefna.