Tungumálatorgið er verkefni með rætur í opinberri stefnumótun og skólastarfi. Það byggir á starfi fjölmargra frumkvöðla og sýn á stöðu, þarfir og framtíð skólastarfs.
Verkefnið var upphaflega skilgreint árið 2008 í menntamálaráðuneytinu og hlaut vilyrði fyrir styrkveitingu sem veitt var á grundvelli stefnu ríkisstjórnarinnar um upplýsingasamfélagið 2008-2012. Í kjölfar aðgerða til lækkunar á ríkisútgjöldum árið 2009 var verkefnið skorið niður en fór engu að síður af stað, eftir afmörkun, með stuðningi og samstarfi margra aðila.
Eiginleg framkvæmd verkefnisins hófst síðari hluta ársins 2009 með viðtölum við fjölmarga aðila, greiningu opinberrar stefnumótunar, skýrsluskrifum, mótun verkefnis, styrkjavinnu og myndun mikilvægs tengslanets.
Frá áramótum 2009-2010 hefur verið unnið að frekari mótun hugmyndafræðinnar, skipulagi og uppsetningu Tungumálatorgs. Drjúgur tími hefur farið í að skoða verkfæri á neti og velja umgjörð fyrir vettvanginn. Samhliða þessari vinnu hefur fjölbreyttu upplýsinga- og námsefni verið safnað og sífellt fleira fagfólk hefur lagt verkefninu lið.
Í byrjun sumars 2010 hófst hin eiginlega vefuppsetning og varð þá afrakstur fyrsta verkefnisárs af þremur skilgreindum þróunarárum sýnilegur á netinu.
Í nóvember 2010 var vefsetur Tungumálatorgsins www.tungumalatorg.is opnað. Það byggist upp af fyrstu vefhlutunum þar sem upplýsinga-, ráðgjafar-, námsefnis- og samskiptavefir leika stór hlutverk.
Tungumálatorgið er opinn vettvangur í stöðugri mótun. Hann er notendum að kostnaðarlausu og býður í framtíðinni upp á frekari þróun efnis og samskipta.