3. Í strætó og í banka
Ólafur og frænka hans fara saman í Mjódd að kaupa strætómiða fyrir Ólaf. Þegar þau fara úr strætó fara þau í banka til að skipta gjaldeyri í íslenska peninga og taka út peninga úr hraðbanka. Gjaldkerinn sýnir Ólafi íslenska peningaseðla og mynt. Nemendur í tímanum tala um hvar þeir búa, hvernig þeir fara í vinnuna, og fara saman í strætóleik þar sem þeir læra að spyrja vagnstjórann til vegar.
Eftir þennan þátt…
- Ég kann að kaupa strætókort og miða
- Ég kann að spyrja hvað hlutirnir kosta
- Ég kann að fara í bankann til að taka út pening eða skipta peningum
- Ég kann að taka út pening í hraðbanka
- Ég kann að segja hvar ég á heima
- Ég kann að spyrja til vegar í strætó