Sigrún missir fyllingu við að tyggja karamellu og þarf að panta tíma hjá tannlækni. Myndbandið sýnir aðstæður þar sem persónuupplýsingar eru gefnar upp. Áhersla er lögð á orðaforða um tannlækni og venjur í tannhirðu. Í kennslustofunni þjálfa nemendur stafrófið og læra orðaforða um klukkuna.
Eftir þennan þátt…
- Ég kann íslenska stafrófið
- Ég kann nokkrar tölur
- Ég get pantað tíma hjá tannlækni
- Ég þekki orð yfir tennur og tannhirðu
- Ég veit hvernig maður gefur upplýsingar á borð við heimilisfang, kennitölu og síma
- Ég kann svolítið á klukkuna