[su_slider source=“media: 915,916,917,918,919,920,921,922,923,924,910,909,908,905″]Útskriftarnemendur leikskólanna heimsóttu Fellaskóla dagana 27.-29. maí. Eldri nemendur tóku vel á móti tilvonandi grunnskólanemendum. 1. bekkingar buðu upp á skemmtun í sal og útivera var í fylgd 2. bekkinga fyrsta daginn. Nemendur úr 5. bekk, tilvonandi vinabekkjum 2009 árgangs voru í lykilhlutverki og sáu um sögustundir og útiveru.
Foreldrar mættu á kynningu síðasta daginn á starfsemi skólans. Þar var frumsýnt myndband með útskýringum á dæmigerðum skóladegi í Fellaskóla.
