KLAKI 1 – er efni tengt efninu Íslenska fyrir alla unnið af Bjarna Benedikt Björnssyni, íslenskukennara við Sorbonne og doktorsnema við Háskóla Íslands.
Markhópur KLAKA 1 eru nemendur í íslensku og norrænum fræðum. Gagnagrunnurinn nýtist öllum sem vilja skoða grunnorðaforða íslensks máls með hliðsjón af kennslubókunum Íslenska fyrir alla og Learning Icelandic, ásamt beygingarflokkum og skýringum.