Þá er fyrsta lota Spunanámskeiðsins formlega hafin.
Við hvetjum ykkur til að skoða námskeiðsvefinn vel og kynna ykkur efni 1. lotunnar.
Athugið að skrá ykkur inn með aðgangsorðunum ykkar á Tungumálatorginu (eða búa þau til ef þörf er á)
Þetta er í fyrsta skipti sem netnámskeið er haldið á Tungumálatorginu. Við erum að fikra okkur áfram með útfærslur, sjálfar að læra á sum verkfærin og eigum eflaust eftir að reka okkur einhvers staðar á. Við biðjum þig að koma með gagnlegar ábendingar og taka þátt í þessari spennandi uppbyggingu.
Kveðja,
Þorbjörg og Kristín María
tungumalatorg@gmail.com