Póstur til þátttakenda

Þá er fyrsta lota Spunanámskeiðsins formlega hafin.
Við hvetjum ykkur til að skoða námskeiðsvefinn vel og kynna ykkur efni 1. lotunnar.

Athugið að skrá ykkur inn með aðgangsorðunum ykkar á Tungumálatorginu (eða búa þau til ef þörf er á)

Þetta er í fyrsta skipti sem netnámskeið er haldið á Tungumálatorginu. Við erum að fikra okkur áfram með útfærslur, sjálfar að læra á sum verkfærin og eigum eflaust eftir að reka okkur einhvers staðar á.  Við biðjum þig að koma með gagnlegar ábendingar og taka þátt í þessari spennandi uppbyggingu.

Kveðja,
Þorbjörg og Kristín María
tungumalatorg@gmail.com

Þessi færsla var birt undir Forsíðufrétt. Bókamerkja beinan tengil.