Fyrstu skrefin og símatími

Það er ánægjulegt að sjá fyrstu athugasemdir, verkefni og dagbókarskrif þátttakenda birtast á netinu 🙂

Við settum í tilraunaskyni upp hóp fyrir námskeiðið þar sem hægt er að sjá flesta af þeim tæplega 50 þátttakendum sem skráðir eru á námskeiðið.  Þar er einnig vettvangur fyrir umræðu um verkefnin og hvað annað sem kemur upp í hugann.

Hikið ekki við að nota umræðuþræðina eða tölvupóstinn og næsta fimmtudag verður símatími kl. 11-13.

Kveðja, Þorbjörg og Kristín María

Þessi færsla var birt undir Forsíðufrétt. Bókamerkja beinan tengil.