Á námskeiðstímanum eiga þátttakendur að prófa eitt af verkfærum námskeiðsins með eigin nemendum og skila stuttri kennsluáætlun og mati inn á sameiginlegt svæði þátttakenda.
Kennsluáætlunina má setja upp í eftirfarandi liðum.
- Kennsluáætlun
- Dagsetning
- Lengd kennslustundar
- Hópurinn
- Markmið
- Kennslugögn
- Staða nemenda
- Efni kennslustundar
- Nálgun og rök fyrir vali á viðfangsefni
- Hvað geri ég?
- Hvað gera nemendur?
- Hugsanleg vandamál og lausnir
- Til ígrundunar eftir tíma
- Hvað gekk vel?
- Hvað kom mér á óvart?
- Náði ég settum markmiðum?
- Ef ég ætti að kenna sama efni aftur, hverju myndi ég breyta?
Þátttakendur hafa frjálsar hendur með útfærslu skila (texti, hljóð, skjáupptökur, upptökur af nemendum, ljósmyndasýning o.fl. kemur til greina).