Skipulag
Námskeiðið fer fram í fjarnámi og er byggt upp af 4 lotum sem hver stendur í 2 vikur.
- Lota 1: 8. – 21. október 2012
- Lota 2: 22. okt. – 4. nóv. 2012
- Lota 3: 5. nóv. – 18. nóv. 2012
- Lota 4: 19. nóv. – 2. des. 2012
* * *
Viðfangsefni
Á námskeiðinu verða valin verkfæri kynnt til sögunnar er tengjast eftirfarandi flokkum.
Lota 1: Skapandi skipulag
Lota 2: Hljóð og miðlun
Lota 3: Samskipti og samvinna
Lota 4: Myndir og myndvinnsla
Sjá lista yfir viðfangsefni sem fjallað verður um í hverri lotu.
* * *
Yfirlit af verkefnavinnu
Eftirfarandi yfirlit sýnir helstu þætti er snúa að þátttakendum:
Lota 1: Skapandi skipulag
- Svara stuttri könnun um eigin þekkingu, reynslu og búnað.
- Kynnast námsumhverfinu (þ.e. vef námskeiðs, umræðusvæði, facebook hópur, póstlista. Horfa á skjákynningar um viðfangsefnin sem eru til umfjöllunar í lotunni.
- Skrá ástundun og upplifanir í dagbókina (geta verið stuttar færslur þá daga sem þátttakendur eru virkir í námi sínu).
- Taka þátt í umræðu um hagnýtt gildi verkfæranna í skólastarfi (og setja að lágmarki tvær færslur inn í umræðuna).
Lota 2: Hljóð og miðlun
- Horfa á skjákynningar.
- Færa dagbók.
- Taka þátt í umræðu.
Lota 3: Samskipti og samvinna
- Horfa á skjákynningar.
- Færa dagbók.
- Taka þátt í umræðu.
Lota 4: Myndir og myndvinnsla
- Horfa á skjákynningar.
- Færa dagbók/lotubók.
- Taka þátt í umræðu.
- Prófa eitt af verkfærum námskeiðsins með eigin nemendum og skila stuttri kennsluáætlun og mati inn á sameiginlegt svæði notenda á torginu (má skila fyrr á námskeiðstímanum).
- Svara könnun um námskeiðið.