Á opnun síðunnar www.menningarmot.is verður tilkynnt að Háteigsskóli verði fyrsti formlegi “Menningarmótsskóli” í Reykjavík. Skólinn hefur notfært sér verkefnið síðastliðin 7 ár og fest það inn í starf sitt með því að halda alltaf Menningarmót í 5. bekk. Verkefnastjóri hefur verið með kynningu fyrir allt starfsfólkið, leiðbeint kennurum og nemendum, og lykilstarfsmaður skólans hefur haldið utan um verkefnið. Á næstu dögum birtist hér frétt um hvernig skóli gerist “Menningarmótsskóli”.
You may also like
Árið 2016 var skemmtilegt Menningarmótsár í leik – og grunnskólum borgarinnar. Mótin fóru meðal annars fram í Menningarmótsskólunum Hólaborg, Árborg, Rofaborg, Laugasól, […]
Á Alþjóðadegi menningarlegrar fjölbreytni, 21. maí ár hvert, verður tilkynnt hvaða skólar séu orðnir formlegir Menningarmótsskólar. Verkefnið Menningarmót – fljúgandi teppi hefur […]
Við þökkum allar góðar kveðjur í tilefni þess að menningarmot.is fór á flug. Sérstakar þakkir fá Fríða B. Jónsdóttir og Helga Ágústsdóttir […]
Í tilefni alþjóðadegi franskrar tungu þann 20. mars var haldið skemmtilegt Menningarmót í frönskukennslunni í Háaleitisskóla í samstarfi við Sólveigu Simha. Á […]