Á næsta skólaári hefst spennandi verkefni á Tungumálatorginu. Um er að ræða samvinnuverkefni grunnskólanemenda sem leggja stund á dönsku, norsku og sænsku í skólum á Íslandi og íslenskra barna er búa á Norðurlöndunum.
Vinna nemenda tengist áhugamálum, daglegum veruleika, tungumálum og menningu barna og ungmenna búsettra víða um lönd. Lokaafurð verkefnisins verður miðlað í sjónvarpsþætti á neti, allir fá viðurkenningarskjal fyrir þátttöku og veitt verða verðlaun fyrir skemmtileg verkefni og góða samvinnu.
Verkefnið sem nú er í undirbúningi verður betur kynnt í upphafi næsta skólaárs
















