Markmið verkefnisins

Markmið verkefnisins er að gera kennara á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi í Mosfellsbæ og á Akranesi að sérfræðingum í fjölmenningarlegum kennsluháttum og í bestu leiðum í námi og kennslu nemenda sem læra íslensku sem annað tungumál, móttöku innflytjenda og gagnkvæmu félagslegu aðlögunarferli allra nemenda.

Þátttakendur fá þjálfun í leiðum (best practices) sem góðar þykja í námi og kennslu annars tungumáls og eru notaðar víða. Um er að ræða 6+1 Trait, PALS (Peer-Assisted Learning Strategies) og SIOP (The Sheltered Instruction Observation Protocol).

Þátttakendur fá einnig þjálfun í millimenningarfærni, stöðvavinnu og fjölbreyttum lestrarleiðum ásamt fræðslu um móttöku nemenda sem læra íslensku sem annað tungumál. Þeir fá einnig leiðbeiningar um  hvernig vinna megi að gagnkvæmu aðlögunarferli allra nemenda, auk þess sem kynntar eru starfendarannsóknir kennara o.fl.  Bandarískir og íslenskir sérfæðingar sjá um þjálfunina.

This entry was posted in Fréttir. Bookmark the permalink.