Námskeið í 6+1 vídd ritunar

Reykjavík – föstudaginn 16. september og mánudaginn 19. september 2016

Á  námskeiðinu fá þátttakendur þjálfun í nýrri ritunarnálgun sem byggir á 7 víddum ritunar. Víddirnar sem um ræðir eru hugmyndir, skipulag, rödd, orðaval, setningaflæði, rithefðir og framsetning. Ætlast er til þess að þátttakendur yfirgefi ekki námskeiðið fyrr en að því loknu. Þeir þurfa að mæta með eigin skriffæri.

Þátttökugjald á námskeiðinu er 14.500. Innifalið í því er kennsla, handbók, námskeiðsgögn og kaffi.

Námskeiðið verður haldið ef a.m.k. 20 skrá sig.

Nánari upplýsingar um 6+1 vídd

Dagur: föstudagurinn 16. og mánudagurinn 19. september 2016

Tími:  14.00-17.00

Staður: Safnaðarheimili Háteigskirkju, Háteigsvegi 105 Reykjavík sjá kort
Kennarar: Anna Sjöfn Sigurðardóttir og Borghildur Sigurðardóttir

Námskeiðið er haldið á vegum SÍSL verkefnisins og styrkt af Endurmenntunarsjóði grunnskóla.

Vinsamlegast skráið þátttöku hér:

This entry was posted in Uncategorized. Bookmark the permalink.