Hvernig símar eru notaðir?
- Það þarf að vera hægt að taka upp myndbönd og myndir á símana og eins þarf að vera bluetooth tengibúnaður, þannig að krakkarnir geti sent okkur verkefnin.
Hver á símana?”
- Við erum búin að kortleggja farsímaeign krakkanna, þ.e. hverjir eiga síma sem hægt er að nota í verkefnin, og það kemur í ljós að langflestir símar eru með þessum búnaði.
Eru símanir notaðir eingöngu sem upptökutæki eða eru gögn send með þeim?”
- Gögnin eru send úr símunum, með bluetooth.
Er ókeypis SMS sendingar notaðar (t.d.ja.is/sms)?”
- Ókeypis sms sendingar eru notaðar eingöngu – ja.is og nova.is
Eru MMS send?
- Við sendum ekki mms.
Her borgar ef um símtöl er að ræða?
- Einu símtölin sem um ræðir eru símtöl við hringjum í krakkana. Þá hringjum við bara úr síma í skólastofunni, þannig að sá kostnaður lendir á skólanum.
Hvernig er haldið utan um video-fælana?
- Video-fælarnir eru geymdir í möppu í tölvu.
- Þeir eru fluttir yfir með bluetooth. Sem kostar ekkert. Til að flýta fyrir þegar krakkarnir koma inn með verkefnin tökum við á móti verkefnum í okkar síma líka. Þannig að það er hægt að skila á þrjá mismunandi vegu í einu. Semsagt til mín, til Siggu og beint í tölvu. Það sem fer inn á símana okkar flytjum við síðan sjálf inn á tölvuna þegar tími gefst til.
Fá nemendur verkefnin fyrirfram eða jafnóðum í ratleik?
- Nemendur eru með möppu með verkefnum sem þeir geta byrjað á því að leysa – þannig að þeir fá verkefni bæði fyrirfram og jafnóðum. Sms skilaboðin og símtölin fá þau jafnóðum, en í möppunni eru líka allskonar verkefni sem þau leysa á milli sms-a. Þetta er gert til þess að þau þurfi aldrei að sitja aðgerðarlaus.
Hefur kennari stjórnstöð í ratleik, stjörnuhlaupi?”
- Það er misjafnt hvort við höfum stjórnstöð.
- Ef við erum með ratleik þá er annað okkar alltaf inni í stofu, að senda sms – bróðurpart tímans.
- Hitt gengur oft um og fylgist með vinnunni.
- Ef þau fara út út húsi, sem þau gera oft þá fá þau yfirleitt símtöl með leiðbeiningum – þá eiga þau t.d. að finna eitthvað sem við erum búin að fela í næsta nágrenni við skólann.
- Þegar svoleiðis er þá er annar kennarinn upptekinn við símtöl, en hinn við sms.
- Við höfum farið með þeim út í atviksorðahlaup og forsetningagöngu, þannig að þá höfum við ekki beint stjórnstöð – en erum einhversstaðar innan seilingar.