Í landi norðurljósanna
Þú sem átt heima
með eyju í hjartanu
og víðáttur geimsins
stétt undir iljunum:
Réttu mér norðurljósin!
Ég ætla að dansa við unglinginn
sem heldur á stjörnunum.
Við roðflettum myrkrið
og afhausum eymdina.
[expand title=“Samvinnuverkefni á neti“ trigclass=“highlight“]
Verkefnið er hugsað fyrir samvinnuvettvang á neti fyrir lokaðan hóp nemenda, t.d. Moodle, Ning, PbWorks eða annað svipað. Verkefnin eru ætluð nemendum sem eru með færni í einu norrænu málanna á þrepi A2 – C1 mælt á mælistiku Evrópurammans. Verkefnin henta því vel nemendum í efstu bekkjum grunnskóla og nemendum í framhaldsskóla.
Hver nemandi skrifar á sínu tungumáli og viðtakendur svara á sínum málum. Til að byrja með eru öll verkefni eingöngu á íslensku og dönsku, en einnig má hugsa sér að þau megi nota sem lestrarþjálfun í íslensku og dönsku fyrir nemendur sem eiga norsku, sænsku og færeysku að móðurmáli.
Vonir standa til að verkefnið styðji hugmyndina um skyldleika tungumálanna og gegnsæi þeirra og vekji athygli nemenda á því að stór hluti undirstöðuorðaforða málanna er sameiginlegur.
ISLEX- veforðasafnið og Frasar.net eru gagnleg hjálpartæki.
Verkefnin bjóða upp á margs konar samvinnumöguleika, t.d. milli nemenda rá Íslandi og Færeyjum; Íslandi, Færeyjum og Vestur – Noregi, auk samvinnu milli nemenda í norsku, sænsku og dönsku. Þetta er ein leið til að mæta ákvæðum í námskrám sem kveða á um að nemendur kynnist öðrum norrænum tungumálum, en þeirra eign.
[/expand]
Góða skemmtun
Brynhildur Anna Ragnarsdóttir
Erika Frodell
Gry Ek Gunnarsson
Personalet i Tungumálaver