Námskeið í PALS lestri fyrir 2.-6. bekk.
K-PALS í september 2015
Þriðjudaginn 8. september 2015 verður haldið námskeið í K-PALS læsi fyrir yngri barna kennara, sérkennara, leikskólakennara og aðra sem hafa áhuga á að kynna sér K-PALS. Þátttökugjald á námskeiðið er kr. 13.900 á mann. Innifalið í því er kennsla, handbók, námskeiðsgögn og kaffi. Ekki er ætlast til að þátttakendur yfirgefi námskeiðið fyrr en að því loknu og þeir mæta með eigin skriffæri. Námskeiðið verður haldið í Safnaðarheimili Háteigskirkju, Háteigsvegi 105 Reykjavík, frá kl. 14.00-17.30.
Tími: Þriðjudagur 8. september 2015 frá kl. 14:00-17:30 Vinsamlegast skráið þátttöku hér |
PALS fyrir 2.-6. bekk í september 2015
Fimmtudaginn 10. september 2015 verður haldið námskeið í PALS lestri fyrir kennara sem kenna 2.-6. bekk og jafnvel eldri nemendum. Þátttökugjald er 10.600 á mann. Innifalið í því er kennsla, handbók, námskeiðsgögn og kaffi. Ekki er ætlast til að þátttakendur yfirgefi námskeiðið fyrr en að því loknu og þeir mæta með eigin skriffæri.
Tími: Fimmtudagurinn 10. september 2015 frá kl. 14:00-17:30 Vinsamlegast skráið þátttöku hér. |
6+1 vídd ritunar 13. ágúst 2015 kl. 09:00
Á námskeiðinu 6+1 vídd ritunar fá þátttakendur þjálfun í nýrri ritunarnálgun sem byggir á 7 víddum ritunar. Víddirnar sem um ræðir eru hugmyndir, skipulag, rödd, orðaval, setningaflæði, rithefðir og framsetning.
Að námskeiði loknu eiga þátttakendur að:
Kennarar: Borghildur Sigurðardóttir og Anna Sjöfn Sigurðardóttir
Tími: Fimmtudagurinn 13. ágúst 2015, frá kl. 09:00 til 16:00 með hádegishléi. Ætlast er til þess að þátttakendur yfirgefi ekki námskeiðið fyrr en að því loknu. Þeir þurfa að mæta með eigin skriffæri. Staður: Safnaðarheimili Háteigskirkju, Háteigsvegi 105 Reykjavík sjá kort
Kostnaður: Þátttökugjald á námskeiðinu er 15.000. Innifalið í því er kennsla, handbók, námskeiðsgögn og kaffi. Fáist styrkur úr Endurmenntunarsjóði grunnskóla lækkar þátttökugjaldið. Þátttakendur eru á eigin vegum í hádeginu.
Námskeiðið er haldið á vegum SÍSL verkefnisins Vinsamlega skráið þátttöku hér
Hér má nálgast grein um námskeið í 6+1 vídd ritunar sem haldið var í samstarfi við Ísbrú. Greinin var birt í tímaritinu Málfríði.
|
PALS stærðfræði (2.-6. bekkur) 14. ágúst 2015 kl. 08.30
Föstudaginn 14. ágúst 2015 kl. 08.30 verður haldið námskeið í PALS stærðfræði fyrir kennara sem kenna 2.-6. bekk. Forgang hafa kennarar sem setið hafa PALS lestrarnámskeið. Þátttökugjald er 11.800 á mann. Innifalið í því er kennsla, handbók, námskeiðsgögn (á íslensku og ensku) og kaffi. Ekki er ætlast til að þátttakendur yfirgefi námskeiðið fyrr en að því loknu og þeir þurfa að mæta með eigin skriffæri.
Kennslan á námskeiðinu fer að mestu leyti fram á ensku.
Kennarar eru Sarah Powell (frá kl.08.30-11.30) og Anna Kristín Arnarsdóttir og Svava Hjaltalín (frá kl.11.30-12.30).
Staður: Safnaðarheimili Háteigskirkju, Háteigsvegi 105 Reykjavík, sjá kort
Vinsamlegast skráið þátttöku hér:
|
PALS stærðfræði 14. ágúst 2015 kl. 13.00
Föstudaginn 14. ágúst 2015 kl. 13.00 verður haldið námskeið í PALS stærðfræði fyrir leikskólakennara og kennara sem kenna 1. bekk. Forgang hafa kennarar sem setið hafa K-PALS lestrarnámskeið. Þátttökugjald er 11.800 á mann. Innifalið í því er kennsla, handbók, námskeiðsgögn (á íslensku og ensku) og kaffi. Ekki er ætlast til að þátttakendur yfirgefi námskeiðið fyrr en að því loknu og þeir þurfa að mæta með eigin skriffæri. Staður: Safnaðarheimili Háteigskirkju, Háteigsvegi 105 Reykjavík, sjá kort
Vinsamlegast skráið þátttöku hér:
|
PALS fyrir 2.-6. bekk í janúar 2015
Þriðjudaginn 20. janúar 2015 verður haldið námskeið í PALS lestri fyrir kennara sem kenna 2.-6. bekk og aðra sem hafa áhuga á að kynna sér PALS. Þátttökugjald er 8.500 á mann. Innifalið í því er kennsla, handbók, námskeiðsgögn og kaffi. Ekki er ætlast til að þátttakendur yfirgefi námskeiðið fyrr en að því loknu og þeir þurfa að mæta með eigin skriffæri. Tími: Þriðjudagurinn 20. janúar 2015 frá kl. 14:00-17:30 Námskeiðið er styrkt af Endurmenntunarsjóði grunnskóla.
|