Viðtal við Huldu Karen og Ásdísi

Hér má finna viðtal við Huldu Karen Daníelsdóttur, verkefnastjóra um SÍSL verkefnið. Einnig er talað við Ásdísi Hallgrímsdóttur sem er sérfræðingur í PALS lestri fyrir 2.-6. bekk.

SISL_frumkvodlar2

Fréttir | Slökkt á athugasemdum við Viðtal við Huldu Karen og Ásdísi

PALS námskeiðum fjölgað

Vegna mikillar þátttöku hefur verið bætt við PALS námskeiði 4. mars. 2014.

Fréttir | Slökkt á athugasemdum við PALS námskeiðum fjölgað

Undirritun samnings

Nýjasti samningur SÍSL verkefnisins
við höfunda PALS var nýlega undirritaður.

Fréttir | Slökkt á athugasemdum við Undirritun samnings

Námskeið í febrúar og mars 2014

SÍSL verkefnið býður kennurum  upp á þjálfun í viðurkenndum aðferðum sem hafa verið mikið rannsakaðar í Bandaríkjunum og koma vel til móts við þarfir kennara sem starfa með fjölbreytta nemendahópa í skóla án aðgreiningar.

Í febrúar og mars er boðið upp á eftir farandi námskeið:

Skólaskrifstofur sveitarfélaga, grunn- og framhaldsskólar, kennarafélög, fagfélög kennara og aðrir áhugasamir geta pantað til sín námskeið með því að hafa samband við Huldu Karen Daníelsdóttur hulda.karen.danielsdottir@reykjavik.is sem stýri SÍSL verkefninu.

Fréttir | Slökkt á athugasemdum við Námskeið í febrúar og mars 2014

SÍSL verkefnið

Undir SÍSL verkefnið heyrir PALS (e. Peer-Assisted Learning Strategies), 6+1 Vídd ritunar (e. 6+1 Traits of Writing) og Greinabundin íslenskukennsla (e. Academic Vocabulary). Allt eru það hagnýtar og árangursríkar náms- og kennsluleiðir sem nýtast nemendum og kennurum í skóla margbreytileikans. Á þessu skólaári er boðið upp á námskeið í þessum leiðum. Skólar sem vilja halda námskeið af þessu tagi á sínum vettvangi eða kennarar sem hafa áhuga á að sækja námskeið sem haldin eru á vegum SÍSL, er bent á að hafa samband við Huldu Karen Daníelsdóttur verkefnastjóra SÍSL. Netfangið hennar er: hulda.karen.danielsdottir@reykjavik.is

SÍSL verkefnið hefur góðfúslega gefið skólaskrifstofu Mosfellsbæjar leyfi til að stýra og breiða út K-PALS námskeið fyrir leikskólakennara, enda fjármagnaði sveitarfélagið þýðingu K-PALS handbókarinnar. K-PALS námskeiðin eru engu að síður hluti af SÍSL verkefninu.

PALS
Á haustönn voru 8 PALS námskeið fyrir 290 kennara sem kenna nemendum í 2.-6. bekk haldin í grunnskólum víðs vegar um landið. Einnig var haldið í Reykjavík PALS námskeið fyrir kennara sem kenna 1. bekk og sóttu það 47 kennarar víða að af landinu.

Kennarar í Sjálandsskóla

PALS fyrir 1. bekk
Heiðveig Andrésdóttir og Elsa María Hallvarðsdóttir sem kenna á PALS námskeiðunum fyrir 1. bekk, þýddu K-PALS efnið og stóðu sig frábærlega á námskeiðinu sem haldið var 3. september í Reykjavík. Þær þekkja efnið mjög vel og hafa reynslu af því að kenna það í 1. bekk. Til stendur að halda annað námskeið í lok nóvember. Nánari upplýsingar um það verða birtar síðar.

Námskeið í PALS fyrir 1. bekk

Greinabundin íslenskukennslu
Námskeið í Greinabundinni íslenskukennslu (e. academic vocabulary) var haldið dagana 15. og 16. ágúst á vegum SÍSL verkefnisins í samstarfi við Ísbrú fagfélag kennara sem kenna íslensku sem annað tungumál og Endurmenntun Háskóla Íslands. Tæplega fjörutíu kennarar sóttu námskeiðið. Námskeiðið verður aftur í boði á vettvangi skóla sem panta það til sín og einnig stendur til að SÍSL í samstarfi við Ísbrú bjóði eftir áramót kennurum upp á slíkt námskeið sem haldið verður annars vegar í Reykjavík og hins vegar á Akureyri.

Kennarar á námskeiðinu

6+1 Vídd ritunar
Nú er verið að leggja lokahönd á handbók um 6+1 Vídd ritunar. Búist er við að hún fari í prentun í lok nóvember. Boðið verður upp á námskeið í Víddunum á þessu skólaári.


Fréttir | Slökkt á athugasemdum við SÍSL verkefnið

Góður árangur í PALS lestri í Höfðaskóla

Hér fyrir neðan eru upplýsingar um framför nemenda í Höfðaskóla á Skagaströnd sem fengu þjálfun í PALS.

Mynd:  Aukinn lestrarhraði

Fréttir | Slökkt á athugasemdum við Góður árangur í PALS lestri í Höfðaskóla

PALS námskeið á næsta skólaári

Í haust verða hin vinsælu PALS (Peer-Assisted Learning Strategies) lestrarnámskeið í boði á þriðjudögum eftir kl. 13:30 á vettvangi skólanna sjálfra.

Verkefnið hefur verið styrkt af Endurmenntunarsjóði grunnskóla fyrir skólaárið 2012-2013 og því fá fyrstu fjórir skólarnir til að hafa samband við undirritaða, til að tryggja sér slíkt námskeið, það niðurgreitt um það sem nemur kr. 50.000.

Lesa meira

Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við PALS námskeið á næsta skólaári