Skráning er hafin á HringÞing um menntamál innflytjenda sem haldið verður 14. september.
Jafnfram er kallað eftir áhugaverðum rannsóknum og verkefnum til að kynna á margvíslegan hátt. Kynningarnar verða m.a. á markaðstorgi hugmynda þar sem hægt verður að vera með fjölbreyttar kynningar, veggspjöld, tölvuverkefni og annað.
Allir sem hafa frá áhugaverðum verkefnum að segja eru hvattir til að koma þeim á framfæri á þinginu.