Evrópski tungumáladagurinn 26. september

Evrópski tungumáladagurinn hefur verið haldinn hátíðlegur meðal 45 Evrópuþjóða frá árinu 2001. Þennan dag er lögð áhersla á fjölbreytni tungumála í Evrópu og mikilvægi tungumálanáms.  Á vef mennta- og menningarmálaráðuneytis má finna umfjöllun um daginn og hugmyndir að verkefnum og tengt efni.

Í tilefni dagsins mun Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur, STÍL, Samtök tungumálakennara á Íslandi og  mennta- og menningarmálaráðuneytið efna til dagskrár í Hátíðarsal Háskóla Íslands mánudaginn 26. september kl. 16:00. Dagskráin er haldin í samvinnu við samtökin AUS, AFS og Móðurmál.

Við þetta tækifæri verður Evrópumerkið afhent, en það er viðurkenning fyrir nýbreytni og árangur í tungumálakennslu.

Dagskrá:


1.            Dagskráin opnuð – Auður Hauksdóttir forstöðumaður Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur.

2.            Afhending Evrópumerkisins, Jórunn Tómasdóttir formaður dómnefndar  gerir grein fyrir niðurstöðu nefndarinnar. Fulltrúi ráðuneytisins afhendir verðlaunin.

3.            Cinzia Fjóla Fiorini formaður samtakanna Móðurmáls lýsir fjölbreyttum aðferðum við að kenna börnum móðurmál sitt utan heimalandsins.

4.            Kór Kársnessskóla syngur nokkur lög á íslensku og erlendum tungumálum undir stjórn Þórunnar Björnsdóttir kórstjóra.

5.            Ragnheiður Jónsdóttir formaður STÍL fjallar um ungmennaskipti og tungumálanám.

6.            Fulltrúar frá AUS, Alþjóðlegum ungmennaskiptum og skiptinemasamtökunum AFS segja frá reynslu sinni af því læra tungumál með því að dvelja erlendis. Annars  vegar er um að ræða tungumál sem þau höfðu lært í íslenskum skólum og hins vegar önnur mál.

7.            Kristín M. Jóhannsdóttir málfræðingur segir frá META-NET, verkefni um margmála máltækni, og þýðingu þess fyrir íslensku.

8.            Erlendir stúdentar við Háskóla Íslands flytja ljóð á móðurmáli sínu.

Boðið verður upp á kaffiveitingar að lokinni dagskrá.

Þessi færsla var birt undir Forsíðufréttir. Bókamerkja beinan tengil.