Gleðilegt ár!

Þátttakendum, stuðningsaðilum og öllum notendum Tungumálatorgsins er þakkað fyrir liðið ár og óskað farsældar á árinu 2012.

Síðasta ár á Tungumálatorginu einkenndist af aukinni umferð, fleiri notendum, nýjum vefjum, margvíslegum verkefnum, nýju námsefni, styrkari stoðum og frábæru starfssamfélagi!

Fram undan eru spennandi tímar á Tungumálatorginu og fyrirsjáanleg eru ný verkefni, frekari kynningar og námskeið, fjölbreytt samstarf, opinber stuðningur og ýmsir nýir sprotar sem eiga eftir að þróast og dafna á torginu.

Þessi færsla var birt undir Forsíðufréttir. Bókamerkja beinan tengil.