Að kunna orð
- Að geta tengt saman hugtak og mynd
- Að skilja orðið í töluðu máli þegar það kemur fyrir í samhengi/aðstæðum
- Að skilja orðið í rituðu máli þegar það kemur fyrir í ólíkum textum
- Að geta sagt orðið og notað það í réttu samhengi.
- Að geta notað orðið í réttu samhengi í rituðum texta.
- Að geta útskýrt orðið
Hvaða orð á að læra?
- Lærðu orð sem eru mikilvæg í tengslum við námsefnið (context)
- Lærðu orð sem þú heyrir og lest aftur og aftur
- Lærðu orð sem þú veist að þig langar til að nota
- Ekki leggja áherslu á sjaldgæf orð
- Lærðu orð sem eru gagnleg fyrir þig
Hvernig lærum við orð?
- Endurtaka – endurtaka – endurtaka. Nota orðið aftur og aftur.
- Tengja orðið við myndir. aðstæður og önnur orð.
- Nota orðin sem þú kannt eins oft og þú færð tækifæri til – í samhengi.
- Búa til orðakort og nota þau aftur og aftur
- Fáðu einhvern til að vinna með þér við að æfa þau og rifja upp.