Sameiginlegt minni bekkjarins
- Endurnýtið texta sem þið hafið unnið með/lesið með nemendum í öðru samhengi.
- Byrjið verkefnið með því að biðja nemendur að punkta hjá sér eins mikið og þeir muna um textann, án þess að líta á textann, glósur úr honum eða spyrja aðra.
- Nemendur vinna svo saman tveir og tveir og setja punktana sína saman í einn lista.
- Endurtakið en nú með tveimur pörum í hverjum hópi sem hjálpast að við að muna textann, efni hans, orðaforða og form.
- Að lokum vinnur allur bekkurinn að því að endurskapa textann gaman að sjá hve mikið nemendur muna sameiginlega.
- Ef í ljós koma göt í minninu — getur kennarinn, á þessu stigi, spurt spurninga til að rifja upp.
- Að lokum er upprunalegi textinn lesinn upphátt og nemendur beðnir um að bera hann saman við eigin útgáfu.
Í vinnu nemenda við að endurskapa texta í pörum og hópum hefur komið í ljós að þeir byrja á að tala um inntak og efni á eigin tungumáli: staðreyndir og orðaforða sem tengist textanum, en fara svo að ræða stafsetningu, málfræði, orðaröð og uppbyggingu textans á markmálinu og hjálpast að við að leysa verkefnið sem best.
Prófið — þetta er skemmtileg tal– og ritunaræfing!