Takið daginn frá!

Athygli er vakin á HringÞingi um menntamál innflytjenda, sem haldið verður föstudaginn 14. september 2012 í Rúgbrauðsgerðinni í Reykjavík.

Á þinginu gefst kostur á að kynna fyrirmyndarverkefni er tengjast menntamálum innflytjenda á öllum skólastigum. Aðstandendur HringÞingsins hvetja þá sem unnið hafa áhugaverð verkefni til þátttöku.

Þessi færsla var birt undir Uncategorized. Bókamerkja beinan tengil.