Komið er út vorblað Málfríðar – tímarits Samtaka tungumálakennara.
Þema blaðsins er tungumálaferðir og nemendaskipti. Blaðið inniheldur safn greina, frá grunnskólum og framhaldsskólum og sýnir víddina í möguleikum alþjóðasamskipta sem skólum og nemendum standa til boða.
Efnið í blaðinu gefur hugmynd um hvernig hægt er að standa að þessu samstarfi og hvað fæst út úr því: aukinn skilningur á högum annarra, meiri vitund um eigin menningu og annarra og tækifæri til að viðra það tungumál sem lagt er stund á innan kennslustofunnar í raunverulegum samskiptum.
Tungumálaferðir og nemendaskipti gera gagnsemi tungumálsins sýnilega og tilgang kennslunnar augljósan.