Brynja Stefánsdóttir MA flytur fyrirlestur á vegum Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur um samanburðarrannsókn sína á notkun, notagildi og viðhorfs til notkunar skandinavískra tungumála til samskipta í norrænu samstarfi. Litið var annars vegar á íslenska stjórnsýslu og hins vegar á viðskiptalífið.
- Tími: kl. 16:00
- Dagur: miðvikudaginn 29. febrúar
- Staður: stofa 101 í Odda.
Fyrirlesturinn er haldinn á íslensku og er öllum opinn.