CAFÉ LINGUA – lifandi tungumál

Viltu skerpa á tungumálakunnáttu þinni? Miðla íslenskukunnáttu og um leið kynnast nýjum tungumála- og menningarheimum? Finna einhvern til að spjalla við á þínu móðurmáli?

Borgarbókasafn býður gestum að hitta aðra heimsborgara á tungumálatorgi aðalsafns, Tryggvagötu 15, á mánudögum kl. 17-18.

Café Lingua er lifandi vettvangur fyrir orð, spjall, og samskipti.
Allir eru velkomnir og þátttaka ókeypis.

Þessi færsla var birt undir Forsíðufréttir. Bókamerkja beinan tengil.