Félag dönskukennara stendur fyrir fræðslufundi 18. mars kl. 15:00 – 18:00 í Háskólanum í Reykjavík við Nauthólsvík.
Á dagskrá verður:
- Else Brink farandkennari: Samvinnunám í dönskukennslu (cooperative learning).
- Heimir Eyvindsson og Sigríður Sigurðardóttir: Notkun GSM síma í dönskukennslu.
- Lovísa Kristjánsdóttir: Kvikmyndaáfangar í MH. Lovísa miðlar af reynslu sinni og stýrir umræðum.
Í lok fræðslufundarins verður boðið upp á léttar veitingar og er fundurinn félögum að kostnaðarlausu.
Til að auðvelda skipulag og framkvæmd þarf stjórnin að hafa áætlaðan fjölda þátttakenda.
Vinsamlegast skráið ykkur sem fyrst hjá Sigríði: [email protected]
Takið daginn frá!








