Fræðslufundur Félags dönskukennara 18. mars 2011

Félag dönskukennara stendur fyrir fræðslufundi 18. mars kl. 15:00 – 18:00 í Háskólanum í Reykjavík við Nauthólsvík.

Á dagskrá verður:

  • Else Brink farandkennari: Samvinnunám í dönskukennslu (cooperative learning).
  • Heimir Eyvindsson og Sigríður Sigurðardóttir: Notkun GSM síma í dönskukennslu.
  • Lovísa Kristjánsdóttir: Kvikmyndaáfangar í MH. Lovísa miðlar af reynslu sinni og stýrir umræðum.

Í lok fræðslufundarins verður boðið upp á léttar veitingar og er fundurinn félögum að kostnaðarlausu.

Til að auðvelda skipulag og framkvæmd þarf stjórnin að hafa áætlaðan fjölda þátttakenda.

Vinsamlegast skráið ykkur sem fyrst hjá Sigríði: [email protected]

Takið daginn frá!

Dette indlæg blev udgivet i Uncategorized. Bogmærk permalinket.