Á Alþjóðadegi menningarlegrar fjölbreytni, 21. maí ár hvert, verður tilkynnt hvaða skólar séu orðnir formlegir Menningarmótsskólar.
Verkefnið Menningarmót – fljúgandi teppi hefur verið innleitt í fjölmörgum leik -, grunn – og framhaldsskólum í Reykjavík á vegum Borgabókasafns Reykjavíkur frá árinu 2008. Menningarmót er þverfagleg aðferð í starfi með börnum og fullorðnum þar sem leitast er við að varpa ljósi á styrkleika og fjölbreytta menningarheima hvers og eins. Meðal markmiða er að þátttakendur geri sér ljóst að fjölbreytt menning, áhugasvið og ólík tungumál mynda mikilvægt menningarlegt litróf í samfélaginu öllu. Þátttakendur veita öðrum hlutdeild í þeirri gleði og stolti sem fylgir því að miðla áhugamálum sínum og menningu á skapandi hátt. Verkefnið býður uppá gagnvirkt samstarf við foreldra sem fjölmenna á Menningarmótin og eru ávallt mjög áhugasamir og virkir þátttakendur með börnum sínum. Hér á vefnum má finna margvíslegar upplýsingar um hvernig nota má Menningarmótin í kennslu og skólastarfi allt frá leikskóla til fullorðinsfræðslu.
Verkefnið Menningarmótsskólar og vefurinn www.menningarmot.is byggir á samstarfi Borgarbókasafns og skóla – og frístundasviðs Reykjavíkur og samræmist stefnu borgarinnar um fjölmenningarlegt skólastarf.
Hvernig verður skóli Menningarmótsskóli?
- Verkefnisstjóri og höfundur Menningarmótsins, Kristín R. Vilhjálmsdóttir, kynnir verkefnið og heimasíðu þess fyrir öllu starfsfólki skólans.
- Verkefnisstjóri Menningarmótsins leiðbeinir einu sinni til tvisvar við framkvæmd verkefnisins í skólanum. Að því búnu er valinn lykilstarfsmaður til að bera ábyrgð á verkefninu innan skólans. Gott er að starfsmenn skólans í sameiningu velji þann árgang eða þann leikskólahóp sem setur upp Menningarmótið hverju sinni.
- Lykilstarfsmaður heldur utan um Menningarmót í skólanum með því að vísa samstarfsmönnum á heimasíðu Menningarmóta og leiðbeinir sjálfur ef þörf er á. Lykilstarfsmaður varðveitir efni og kemur upp “reynslubanka” í tengslum við verkefnið til notkunar í framtíðinni og minnir þá árganga sem skólinn hefur valið, á að halda Menningarmót.
- Skólastjóri eða lykilstarfsmaður upplýsir verkefnisstjóra Menningarmótsins um þróun verkefnisins innan skólans.
- Skólinn setur merki Menningarmóta á heimasíðu sína þar sem er vísað á slóðina www.menningarmot.is. Þá er einnig vísað í heimasíðu verkefnisins í fréttum og umfjöllun um Menningarmót á vef verkefnisins.
Áhugasamir hafi samband við verkefnastjóra fjölmenningar hjá Borgarbókasafninu:
kristin.r.vilhjalmsdottir@reykjavik.is
4116122/6181420