Íslensk málfræði

Vefur: Hugtakaskýringar í málfræði.
Orðflokkar í íslensku
Orðflokkur Dæmi Hlutverk
Nafnorð Litli fuglinn hoppar til gamla mannsins sem stendur í garðinum. Hann er með fræ handa fuglinum. Að tilgreina einstaka hluti, eða flokka hluta, jafnt raunverulega sem ímyndaða.
Sagnorð Litli fuglinn hoppar til gamla mannsins sem stendur í garðinum. Hann er með fræ handa fuglinum. Að gefa til kynna aðgerð eða atburð.
Lýsingarorð Litli fuglinn hoppar til gamla mannsins sem stendur í garðinum. Hann er með fræ handa fuglinum. Að lýsa einhverjum hlut nánar. Oftast notað með nafnorði.
Fornöfn Litli fuglinn hoppar til gamla mannsins sem stendur í garðinum. Hann er með fræ handa fuglinum. Vísa til nafnorðs sem þegar hefur verið nefnt eða persónu sem er þekkt. Sum fornöfn er hægt að nota í stað nafnorða án þess að þau vísi til nafnorðs sem þegar hefur verið nefnt.
Greinir Litli fuglinn hoppar til gamla mannsins sem stendur í garðinum. Hann er með fræ handa fuglinum. Að gera nafnorð ákveðin. Greinir getur verið viðskeyttur eða settur fyrir framan nafnorð sem sérstakt orð.
Töluorð Sautján litlir fuglar hoppa til þriggja manna sem standa í garðinum. Þeir eru með tvo poka af fræjum handa fuglunum. Gefa til kynna fjölda eða magn.
Smáorð
Forsetning Litli fuglinn hoppar til gamla mannsins sem stendur í garðinum. Hann er með fræ handa fuglinum. Hafa áhrif á merkingu fallorðs í setningu.
Atviksorð Hann fór upp stigann og inn í herbergið en hún fór niður stigann og út.Hann les mjög illa. Hún las ekki vel. Geta staðið með sögnum, lýsingarorðum og öðrum atviksorðum og þannig lýst þeim betur. Atviksorð beygjast ekki.
Nafnháttarmerki Litli fuglinn er hoppa til gamla mannsins sem stendur í garðinum. Hann er gefa öðrum fuglum fræ. Nafnháttarmerkið er orðið „að“ á undan sagnorði í nafnhætti. Sögn í nafnhætti er án tíðar og endar oftast á „a“, þótt ýmis sagnorð endi á öðru en -a: (að abbast, að ferðast, að þvo, að sjá…).
Samtenging Litli fuglinn hoppar til gamla mannsins sem stendur í garðinum og er með fræ handa fuglinum. Tengir saman einstök orð eða setningar til að mynda málsgrein. Skiptist í aðaltengingar og aukatengingar.
Upphrópanir Ó, hve fagur er fuglinn! – Sýna undrun, hrifningu, hræðslu, gleði, eða reiði.
Í ágúst 2011/AGJ

CC-LEYFI

Heimildir