Markmið:
- Að nemendur kynnist tengslum vinnu og launa.
- Að nemendur skoði laun sín umreiknuð í aðra gjaldmiðla.
Færðu vasapeninga?
- Hvað er upphæðin há á viku?
- Þarftu að vinna fyrir þeim?
- Hefurðu einhvern tímann fengið laun fyrir vinnu?
- Hvaða vinna var það?
Kannaðu hvernig þessu er háttað hjá jafnöldrum annars staðar.
Hvað eru laun?
- Hvað heitir íslenski gjaldmiðillinn?
- Hvað geturðu fengið margar danskar, sænskar, norskar krónur fyrir 1000 íslenskar. Nýttu þér Myntbreyti á heimasíðum bankanna.
- Hvaða gjaldmiðill er í Finnlandi, Danmörku, Noregi og Svíþjóð? Hvað fæst mikið af honum fyrir 1000 íslenskar krónur?
Umreiknaðu vasapeningana þína í einhvern norrænan gjaldmiðil, verð á bíómiða og einhverju algengu sælgæti.
Kannaðu hvað af eftirlætissælgætinu þínu er framleitt á Norðurlöndunum.