Markmið: Að kynna sér ytri umgjörð samfélagsins eða afmarkaða hluta þess.
[expand title=“Tilvalin viðfangsefni (einhver þeirra eða öll)“ trigclass=“highlight“]- Lega sveitarfélagsins og gerð þess.
- Landslag (og e.t.v. helstu örnefni).
- Íbúar (fjöldi, aldursskipting, uppruni).
- Atvinnulíf.
- Samgöngur við sveitarfélagið og innan þess.
- Opinberar stofnanir (söfn, sjúkrahús, kirkja, íþróttamannvirki, strætisvagnar, skólar, lögregla, o.s.frv.).
- Skólar og menntun.
- Íþróttaiðkun og aðstaða til hennar.
- Félagsstarf í sveitarfélaginu.
- Afþreyingarmöguleikar.
- Sérstaða á landsvísu.
Einstaklingsverkefni
Segðu frá því hvaða staður í sveitarfélaginu þér finnst fallegastur.
- Taktu eða teiknaðu af honum mynd. Settu undir myndina einfaldan skýringartexta. Notaðu t.d. Bookr eða Flicker til að birta afraksturinn.
- Sendu slóðina á wiki síðu bekkjarins eða til samskiptabekkjar og fáið sambærilegar upplýsingar í staðinn.
Gerðu grein fyrir uppáhaldsstaðnum.
- Hann getur verið hvort sem er innan húss eða utan.
- Þú getur gert grein fyrir honum munnlega, skriflega, í sögu eða ljóði.
- Þú getur teiknað hann eða tekið af honum mynd.
- Þú getur búið til myndasögu á Bookr eða Flickr Toys og birt á vefnum.
Hópverkefni
Gerið veggmynd af aðalgötu bæjarins, nánasta umhverfi nemendanna (gatan, heimilið, leiksvæðið, skólinn), höfninni, helstu byggingum eða áberandi atriðum í landslagi.
Gerið yfirlitsmynd af sveitarfélaginu, hvar eru mörk þess, hvað einkennir það helst?