Markmið:
- Að nemendur beri saman hve framsetning efnis er ólík eftir miðlum.
- Að nemendur beri saman framboð efnis í ljósvakamiðlum eftir löndum.
- Hversu marga fjölmiðla geta nemendur nefnt
- Hvaða fjölmiðlar eru algengastir á íslenskum heimilum?
- Nemendur fletta í gegnum dagblöðin/netmiðla og gera lista yfir efni frá Norðurlöndum og flokka á einfaldan hátt.
- Nemendur klippa út fyrirsagnir og taka saman upplýsingar um fólk.
- Nemendur gera samanburð á fréttaflutningi einstakra fjölmiðla á sama atburði eftir því sem tilefni gefst til.
- Nemendur bera saman sjónvarpsdagskrá eins og hún birtist í íslensku dagblaði annars vegar og hins vegar í norrænu blaði/netmiðli: – Er lengd dagskrár svipuð? Eru sömu þættir á dagskrá? Er hlutfall barna og unglingaefnis í dagskránni svipað?
- Nemendur bera saman bíóauglýsingar á Íslandi og öðrum Norðurlöndum og e.t.v. auglýsingar frá leikhúsum, sbr. midi.is.
- Berið saman texta í fjölþjóðaútgáfum myndasagna, t.d. Andrés önd (íslenska, danska, sænska og norska útgáfan) og Tinna.