Markmið: Að nemendur geri könnun á ferðamennsku í heimabyggð.
- Koma margir erlendir ferðamenn í heimabyggð þína og hvað gera þeir þar?
- Hverju sækjast þeir eftir?
- Hvernig er landslagi og atvinnulífi háttað?
- Hverju ertu stolt(ur) af í byggðarlagi þínu eða landinu þínu?
- Hvað býður umhverfið upp á að þú gerir með þeim ef þeir koma í heimsókn?
Hópverkefni
Undirbúið heimsókn. Skipuleggið skoðunarferðir.
- Hvað ætlið þið að segja þegar þið farið með gestunum ykkar í skoðunarferð?
- Hvernig skiptið þið með ykkur leiðsögn í skoðunarferðinni?
- Hvaða ráðstafanir þarf að gera fyrirfram (húsnæði, fæði, ferðir, kostnaður)?
Orðaforði og málnotkun
- Búðu til lista yfir nauðsynleg orð og setningar sem þú veist að þú þarft örugglega að nota.
- Æfðu þig í því að segja þær upphátt og við félaga þína í skólanum.