Markmið:
- Að nemendur fái yfirlit yfir íþróttaiðkun sem tengd er norðurlöndunum í hugum fólks og sögulegu samhengi.
- Að nemendur tengi eigin íþróttaiðkun og -áhuga íþróttaiðkun á norðurlöndum.
- Hvað gerir þú í íþróttatímum í skólanum?
- Tekur skólinn þinn þátt í Skólahreysti?
- Hvernig hefur það gengið?
- Hvaða íþróttir stundar þú (fjölskylda þín)?
- Hvað flokkast undir almenningsíþróttir? Hverjir stunda þær?
- Hvað heita íþróttagreinarnar á Norðurlandamálum?
- Þekkirðu nöfn einhverra íþróttamanna, sem stunda einhverjar þessara greina?
- Veistu um einhverja Íslendinga sem stunda íþrótt sína á öðrum Norðurlöndum?
- Eru einhverjir Norðurlandabúar eru virkir í íþróttalífi á Íslandi?
- Hvaða norrænar íþróttastjörnur hafa öðlast heimsfrægð eða náð á pall á Ólympíuleikum eða heimsmeistaramóti? Nýlega? Áður fyrr?
Verkefni:
- Nemendur semja ýmsar spurningar og senda jafnöldrum sínum í samskiptabekk – innlendum eða á norðurlöndunum.
- Nemendur viða að sér fróðleik úr dagblöðum, tímaritum og munnlegum heimildum.
- Nemendur búa til yfirlit yfir helstu íþróttagreinar hvers lands og gera grein fyrir stærstu nöfnunum í hverri íþróttagrein.
- Líka má útbúa tölulegt yfirlit yfir vinsælustu íþróttagreinar í hverju landi og árangur á heimsmælikvarða og bera saman milli landa.