Á opnun síðunnar www.menningarmot.is verður tilkynnt að Háteigsskóli verði fyrsti formlegi “Menningarmótsskóli” í Reykjavík. Skólinn hefur notfært sér verkefnið síðastliðin 7 ár og fest það inn í starf sitt með því að halda alltaf Menningarmót í 5. bekk. Verkefnastjóri hefur verið með kynningu fyrir allt starfsfólkið, leiðbeint kennurum og nemendum, og lykilstarfsmaður skólans hefur haldið utan um verkefnið. Á næstu dögum birtist hér frétt um hvernig skóli gerist “Menningarmótsskóli”.
You may also like
Ingunnarskóli er formlegur Menningarmótsskóli Ingunnarskóli hefur sett Menningarmót á dagskrá í febrúar ár hvert í 5. og 9. bekk. Skólinn hélt Menningarmót […]
Það er hægt að nota Menningarmótsaðferðina á ýmsan hátt. Í vor héldu nemendur í Hagaskóla flott Menningarmót í Borgarbókasafninu í Grófinni, þar […]
Í október 2022 var verkefnið Menningarmót – Fljúgandi Teppi innleitt í Djúpavogsskóla sem hluti af barnamenningarhátíðinni BRAS. Hér að neðan má sjá […]
Við þökkum allar góðar kveðjur í tilefni þess að menningarmot.is fór á flug. Sérstakar þakkir fá Fríða B. Jónsdóttir og Helga Ágústsdóttir […]