Heill heimur af börnum – Menningarmót á Ísafirði

Menningarmót er hluti af framtakinu “Heill heimur af börnum – börn setja mark sitt á Íslandskortið” sem hefur verið sett af stað í tengslum við 80 ára afmæli íslenska lýðveldisins.  Um er að ræða samstarfsverkefni milli Safns Jóns Sigurðssonar á Hrafnseyri, Þjóðgarðsins á Þingvöllum og Kristínu R. Vilhjálmsdóttur menningarmiðlara.

Nemendur Grunnskólans á Ísafirði tóku þátt í verkefninu í apríl og var það jafnframt hluti af Púkanum – Barnamenningarhátíð Vestfjarða. Börnin á miðstigi unnu að fjölbreyttum verkefnum. Þau bjuggu meðal annars til risastóran tungumálaregnboga sem hafði að geyma orð á öllum þeim tungumálum sem hópurinn býr að. Orðin endurspegluðu þau gildi sem börnin vildu leggja áherslu á í vinnunni: Ást, frið, hamingju, fjölskyldu, líf, lýðræði og vináttu.

 

Einnig unnu þau hvert fyrir sig að tímalínu eigin ævi, myndrænni sól sem lýsir því hvað fær þau til að ljóma og settu saman sína eigin persónulegu fjársjóðskistu með munum sem skipta þau máli. Vikan endaði svo á glæsilegu Menningarmóti þar sem börnin kynntu afrakstur vinnu sinnar.

Markmið “Heils heims af börnum” er að skapa meðvitund um mikilvægi þess að kynnast sögu, styrkleikum og hugmyndaauðgi annarra og efna til samræðu um hvernig við öll skiptum máli í lýðræðislegu samfélagi. Um leið er lögð áhersla á að hlúa að virðingu fyrir hvert öðru þvert á fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.

Horft er til fortíðar og framtíðar og staldrað við í nútímanum. Augu barnanna eru opnuð fyrir því ríkidæmi sem er að finna á hverjum og einum stað, bæði í staðnum sjálfum og í fólkinu sem þar býr. Börnin taka sjálf þátt í því að skilgreina „ríkidæmið“ í nærumhverfi sínu, fólkið, landslagið, náttúruna, menningarlífið og menningararf.

Sjá umfjöllun á vef Vestfjarðastofu.