Norden i Skolen er nýtt samnorrænt kennslutæki á netinu sem býður kennurum og nemendum upp á alveg nýja möguleika við kennslu á norðurlandamálunum. Á vefsvæðinu má m.a. finna rafrænar tungumálaæfingar og –spil, norræna hjóðorðabók, gagnvirka málsögulega tímalínu, ljóð, stuttmyndir, smásögur, vinabekkjaleit, sýndarkennaraherbergi og margt fleira.
Thomas Henriksen, verkefnisstjóri, heldur kynningu á Norden i Skolen. Thomas leiðir gesti um vefsvæðið og útskýrir innihald þess og notkunarmöguleika.
[expand title=”Dagskrá” trigclass=”highlight”]2 tímar Kynning
- sýndir er danskir textar, stuttmyndir og tónlistarmyndbönd.
- kennslufræðilegar hugmyndir fyrir kennslu í dönsku, norsku og sænsku
- nýja vinabekkjatólið
Hópavinna: þátttakendur nota vefsvæðið og ræða saman um notkunarmöguleika þess.
15 mín. Kaffi og danskt góðgæti
45 mín. Kynning á niðurstöðum úr hópavinnu
- álit á innihaldi og notkunarmöguleikum vefsvæðisins
- óskir um notkunarmöguleika í framtíðinni með þarfir dönsku-, norsku-, og sænskukennara á Íslandi í huga
Hér má kynna sér Norden i Skolen. Norden i Skolen vefsvæðið opnar opinberlega í október.
[/expand] [expand title=”Í hnotskurn” trigclass=”highlight”]Norden i skolen kynning
Staður og stund: Norræna húsið, mánudaginn 26. ágúst, kl. 13 -16 og Brekkuskóli á Akureyri, þriðjudaginn 27. ágúst, kl. 14:15 – 17
Markhópur: Kennarar og leiðbeinendur, en allir eru velkomnir
Verð: Ókeypis
Annað: Þáttakendur eru beðnir um að taka með sér tölvur ef kostur er á.
[/expand]Frekari upplýsingar veita Stefán Vilbergsson hjá Norræna félaginu á netfanginu: stefan@norden.is og María Jónsdóttir hjá Norrænu upplýsingaskrifstofunni á Akureyri á netfanginu: mariajons@akureyri.is.
Tekið er við skráningum til kl. 12 föstudaginn 23. ágúst.