Áður en hlustað er
Kynna aðstæðurnar sem hlustunin fer fram í: Hver talar, við hvaða aðstæður og hvers vegna?
Vekja áhuga: Sýna myndir, myndbandsbút, spila tónlist: Vinna með verkefni sem tengja hlustunina áhugasviði og þekkingu nemenda. Umræður í pörum um efnið setur undirvitundina af stað.
Virkja fyrirliggjandi þekkingu nemenda á efninu: Hvað veistu um….?
Styrkja og veita þekkingu sem eykur sjálfstraust nemenda. Það má gera með stuttum spurningaleik Quiz þar sem innihaldið eru staðreyndir sem tengjast efni kaflans.
Virkja orðaforða/málnotkun: Hvers konar tungumál/orð eru notuð í aðstæðum eins og þeim sem við ætlum að hlusta á? Ef t.d. um samræður milli foreldris og unglings/íþróttahetju og fréttamanns er að ræða má vinna með ímyndaðar aðstæður í hlutverkaleik.
Spá fyrir um um innihaldið. Mörg ókunnug orð í texta standa í vegi fyrir skilningi. Velja má nokkur lykilhugtök sem nemendur vinna með: t.d. merkja við orð sem þeir þekkja, para setningahluta, para orð og skilgreiningu hugtaks og nota orðin sem kynnt eru til að giska á innihaldið.
Taka góðan tíma í að lesa fyrirmælin með nemendum.
Einnig má gefa þeim spurningar/verkefni úr textanum og biða þau að giska á hver svörin eru.