Leikur byggður á áhugaverðri blaðagrein/frétt.
Kennari útbýr um það bil 25 spurningar með greininni og svarblað fyrir kennarann.
Setjið eina spurningu á miða = 25 miða með jafnmörgum spurningum.
Processen:
- Nemendum skipt í fjögurra manna hópa og hverjum hópi gefið nafn.
- Hver nemandi fær ljósrit af blaðagreininni og hópurinn allur aðgang að veforðabók.
- Hópnum gefinn tími til að renna yfir greinina í ca. 8-10 mínútur. Á meðan skrifar kennari nafn eða númer hópa á töflu og leggur númeraðar spurningar úr efninu á hvolf á borð.
- Nú hefst fjörið! Einn nemandi úr hverjum hópi kemur og tekur miða með spurningu sem hópurinn sameinast um að leita svars við.
- Nemendur skrifa svarið til skiptis niður á blað og einn kemur með það til kennarans og segir svarið á dönsku. Kennarinn metur hvort svarið sé rétt og gefur nemanda leyfi til að draga nýja spurningu.
- Ef að svarið er rétt skrifar kennari númer spurningarinnar á töflu í reit hópsins.
- Þegar öllum spurningum hefur verið svarað einu sinni er byrjað upp á nýtt svo lengi sem tími gefst til. Hópur má aðeins svara sömu spurningu einu sinni.
- Sá hópur vinnur sem svarar flestum spurningum.
Mikilvægt er að greinin geri kröfur til nemenda en sé um þekkt eða kunnuglegt efni.
Se også stjerneløb