Í skipulagstöflunni fyrir þekkingarramma hér á eftir er viðfangsefnið „Allt um kóngulær“. Þar er sýnt hvernig þekkingarsamsetning, hugsunarhæfni og málleg uppbygging tengjast. Til dæmis, ef grunngerð textans er í tímaröð, verður þekkingarsamsetningin í samfellu (röð). Nemendur verða að skilja og hafa vald á tungutaki samfellunnar, hvernig orða skuli tímatengslin milli viðburða og lýsa þrepunum í ferli. Dæmið um samfellu í töflunni er ævihringur kóngulóarinnar.
[issuu viewMode=singlePage width=300 height=212 shareMenuEnabled=false backgroundColor=%23222222 documentId=111026184549-959d20509866460c8ea2f36922a9b909 name=allt_um_k_ngul_r__ekkingarrammi_mohans_texti username=isfold id=b6026644-0d82-6d25-4461-62dca461eaf6 v=2] | Skoðið þekkingarrammann hér til vinstri. Prentið út hér. |
Þegar slíku ferli er lýst í námsbók er það oft óaðgengilegt fyrir nemendur með annað tungumál sem þurfa fleiri sjónrænar vísbendingar um samhengi til að ráða í sértækan orðaforða innihaldsins og oft flókna setningagerð fræðamálsins.