Lýsing og lykilspurningar

Sex eftirfarandi atriði þarf að hafa í huga til að styðja nemendur og kennara í að fókusa á það sem skiptir máli:

  • Kennarar þurfa að ákveða mikilvægustu hugtökin sem þeir vilja að nemendur læri innan ákveðins námsefnis.
  • Þessi hugtök geta verið algengari en í tveimur efri lögunum.
https://issuu.com/isfold/docs/pyr_lysing_og_lykilspurningar Lesið meira um hugmyndina hér til vinstri.

Prentið út hér.

  • Skipulagspýramídanum er ekki ætlað að takmarka möguleika nemenda á námi.
  • Allir nemendur eiga að hafa jafnan aðgang að sömu upplýsingum þó að framsetning á efninu sé mismunandi og í samræmi við þarfir nemenda.
  • Verkefni sem tilheyra neðsta námslaginu eiga ekki að vera minna hvetjandi né ætti að líta á efri lögin sem stað fyrir skapandi og skemmtileg verkefni.
  • Það má ALLS EKKI setja nemendur í ákveðið námslag pýramídans eftir getu. Nemendur sem vilja læra það sem er í efri lögunum gera það vegna áhuga á efninu, fyrri þekkingar, persónulegrar reynslu eða vegna sérstakra hæfileika.
Í ágúst 2011/AGJ

CC-LEYFI

Heimildir
Assisting year 7 students who need additional support. Programming and Strategies Handbook: Follow-up to ELLA. (1999). Canberra: Commonwealth of Australia. Sótt af http://www.schools.nsw.edu.au/media/downloads/schoolsweb/studentsupport/programs/disabilitypgrms/pshandbooksec.pdf
Shumm, J. S., Vaughn, S., Leavell, A. G. (1994). Planning Pyramid: A framework for planning for diverse student needs during content area instruction. The Reading Teacher, 47 (8), 608-615.